Evudætur í Listasafninu á Akureyri
Laugardaginn 24. október klukkan 15 var sýningin Evudætur opnuð í Listasafninu á Akureyri. Það sýna þær stöllur Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Þorbjörg Halldórsdóttir og Hrafnhildur Arnardóttir. Þær vinkonur unnu allar um skeið í verslun Fríðu frænku þar sem gamlir hlutir ganga í endurnýjum lífdaga og andi hins liðna svífur yfir vötnum. Þær eiga einnig sameiginlegt að vinna með fundna hluti og alls konar lífræn og ólífræn efni og aðferðir.
Í mars lítum við yfir langan feril listmálarans Tryggva Ólafssonar, en þá opnar sýning hans í Listasafninu á Akureyri. Tryggvi nam myndlist bæði hér heima og í Kaupmannahöfn og er meðal þekktustu núlifandi myndlistarmanna Íslendinga. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í fjölmörgum löndum. Verk Tryggva prýða bækur og blöð og hann hefur skreytt byggingar á Íslandi og í Danmörku.
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.